30nóvember

næturvaktin


ég er á minni fyrstu næturvakt og það er mjög rólegt. ákvað að setja inn nokkrar myndir af sætu fjölskyldunni minni. mér finnst doldið skrýtið að vera hérna ein og fékk næstum því taugaáfall áðan þegar maðurinn sem ber út fréttablaðið kom! annars fátt að frétta. prófin nálgast. svo hef ég verið að pæla í að taka loksins bílpróf eftir áramotin. maður verður að klára þetta einhverntíman! kossar og knús
ágústa


ásta guðrún systir og erlendur ásberg pínulitli bróðir





erlendur og pabbi

 jón bróðir og siggi stjúpbróðir

 bolla!

:)
30. nóvember 2007 klukkan 04:01
Ágústa og Brynja
3 athugasemdir
18nóvember

róleg helgi

þetta er búin að vera mjög róleg og þægileg helgi. fór á laugardaginn með brynju í kolaportið og við stússuðumst í bænum.
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket


hitti svo björk í dag og við fengum okkur brunch saman og vorum túristalegar að taka myndir.




hitti svo líka mömmu og nico sem voru í stuði


>





er svo bara búin að vera að læra í kvöld. gott að eiga svona rólegar helgar inn á milli. þessi helgi var nú ekki eins og síðasta helgi þegar ég fór á árshátíð, týndi lyklunum mínum og mætti í vinnuna á 12 tíma vakt eftir að hafa sofið í tæplega 3 tíma! það mun ekki gerast aftur!...........;)


18. nóvember 2007 klukkan 21:42
Ágústa og Brynja
4 athugasemdir
20ágúst

hæ....

margt búið að gerast. er komin heim til íslands. byrjuð að vinna á sambýli. er að fara í menningarfræði í háskólanum. er að fara að skoða íbúð í vesturbænum á morgun og ef mér líst vel á hana þá flyt ég kannski þangað um mánaðarmótin. ég bý núna hjá birnu og sigursteini þangað til. hérna eru nokkrar myndir sem ég er búin að vera að taka á símann minn

 DSC00210.jpg picture by niconi

DSC00407.jpg picture by niconi


DSC00490.jpg picture by niconi

DSC00379.jpg picture by niconi


DSC00125.jpg picture by niconi



DSC00245.jpg picture by niconi

DSC00403.jpg picture by niconi

DSC00597.jpg picture by niconi


DSC00114.jpg picture by niconi


DSC00553.jpg picture by niconi

DSC00435.jpg picture by niconi


DSC00281.jpg picture by niconi
heyri í ykkur fljótlega......
20. ágúst 2007 klukkan 01:22
Ágústa og Brynja
5 athugasemdir
02júlí

Við erum enn og aftur heimilislaus. Við þurftum að flytja út úr íbúðinni hans bróður míns seinasta föstudag því hann er að fara leigja hana...og þar sem við fáum ekki íbúðina okkar fyrr en 27. júlí þá erum við heimilislaus þangað til. En vá hvað mig hlakkar til að flytja inn í mína eigin íbúð! og þurfa ekkert að flytja frekar en ég vil, ekki á annarra manna forsendum, heldur MÍNUM..þetta verður alveg æðislegt Hlæjandi

En já, rosalega mikil ferðahelgi þessi helgi, reyndar fór ég ekkert úr bænum, sat bara úti í sólinni. Það var geðveikt veður á föstudag og laugardag, föstudagurinn fór reyndar bara í eitthvað stúss með systur minni og svo héngum við Sigþór heima hjá henni úti á palli í nokkra stund og steiktum okkur. Á laugardaginn fórum við í Grasagarðinn í göngutúr og á kaffihúsið þar. Reyndar var ekki eins hlýtt á laugardag eins og á föstudag. Eftir Grasagarðinn fórum við í blómaval að skoða og svo til Söru með mat og héngum þar á pallinum í sólbaði Glottandi

Rosa kósí helgi, vildi að ég væri í fríi allar helgar og það væri sól allar helgar! Það væri ljúfa lífið..

Brynja
02. júlí 2007 klukkan 13:25
Ágústa og Brynja
Engin athugasemd
26júní

hjolad i rigningunni

jæja brynja skoradi a mig ad skrifa sma, tha verdur madur nu ad skrifa sma!...:) eg er nuna buin ad vera tæplega viku i Kaupmannahøfn og er bara enntha ad venjast thvi ad vera ekki i Grikklandi. Sylvia og Jesper eru buin ad vera mjøg almennileg og eg er meira ad segja med mitt eigid herbergi. Thau heldu innflutningsparty um seinustu helgi og thad var mikid stud! Gaman ad hitta vini theirra.
Flugvelin min for fra Grikklandi kl 5 um nottina a thridjudeginum i seinustu viku, og for eg thvi bara med nokkrum vinkonum minum i party til ad segja bless og sidan beint upp a flugvøll! Var thvi frekar myglud thegar eg lenti i Danmørku! Thad var alveg rosalega heitt thegar eg for fra Grikklandi, eg held ad hitinn hafi verid um 45 gradur! En thvi midur er buid ad rigna a hverjum degi i Danmørku sidan eg kom hingad. Eg vona bara innilega ad thad verdi ekki rigning thegar Hroarskelda er! Væri gaman ad fa sma sol.
  Eg ætla nuna ad fara ad leita ad vinnu a netinu, verd vist ad gera eitthvad af viti thegar eg kem aftur til islands! en skrifadi ad minnsta kosti sma...;)
kram
agu
26. júní 2007 klukkan 16:18
Ágústa og Brynja
1 athugasemd
24júní

...og blaðrið heldur áfram...

Hvað er uppi? fjör um helgina? það var mjög fínt hjá mér fyrir utan fyrri part laugardagsins þar sem ég þurfti að vinna, frekar fúlt að vera inni í þessarri yndislegu sól. en ég slapp klukkan þrjú! þá fórum við sigþór og náðum í lykla að sumarbústaðnum og héldum á leið útúr bænum með stoppi í búð og ríkinu Glottandi Það var enginn umferð útúr bænum, enda laugardagur og rosa gott veður. Eiginlega um leið og ég var komin í bústaðinn fækkaði ég fötum og setti á mig sólarvörn og lét mig bakast í smátíma, það var alveg heiðskírt og mega sól! svo grilluðum við gott svínakjöt og fyllta sveppi og kartöflur, hvorugt hafði grillað eitthvað að viti áður en maturinn var rosalega góður! Hlæjandi svo sátum við bara úti í kvöldsólinn og ræddum daginn og veginn með vín við hönd Brosandi
versta var að heita potturinn var eitthvað bilaður, rafmagnslaus og við gátum ekki gert við hann, vatnið þarna er nefnilega hitað upp..! svo í dag fórum við í smá göngutúr í náttúrunni í kring! setti inn myndir af þessarri stuttu ferð okkar.

svo á leiðinni í bæinn vorum við bara að keyra og það tekur jeppi fram úr okkur, það er rosalega mikil umferð, við sjáum hann þjótast fram hjá okkur á hinni akreininni og svo birtist risa trukkur á móti honum! hjartað í mér stoppaði í smástund, við héldum að jeppinn og trukkurinn myndi skella saman en jeppinn rétt svo náði að smjúgja á milli bílanna fyrir framan okkur! þvílíkur fáviti!! skil ekki hvernig fólk getur tekið svona sénsa í umferðinni þar sem það er engann veginn eina fólkið sem er að keyra á götunum! Allavega varð ekki árekstur sem betur fer. en þegar við erum komin í gegnum göngin tekur við bílaröð sem náði lengra en Esjan! þvílík röð! úff...náttúrulega allir á leið í bæinn eftir helgina Ullandi

ég var að hugsa um að skora hana ágústu á að henda inn einu bloggi, þess vegna bara eina línu! eruði ekki sammála! Hlæjandi

ég í brekku

Brynja!
24. júní 2007 klukkan 22:47
Ágústa og Brynja
Engin athugasemd
19júní

Nýjar Myndir!

ég og Sigþór fórum í göngutúr og fundum litla paradís í Grafarvoginum Hlæjandi

!MYNDIR!

Brynja
19. júní 2007 klukkan 22:55
Ágústa og Brynja
Engin athugasemd
18júní

Leið til að muna hluti betur!

Fann þetta á þessari síðu og er þetta taktík til að muna betur glósurnar sínar:

  1. First, use a pencil or word processor (I prefer the latter because it’s faster) to type, in complete sentences, any fact you think might appear on the test. Use short sentences because they’re easier to remember.
  2. Take your printed notes into a quiet room, shut the door, and eliminate all distractions.
  3. Look at the first sentence in your notes and read it out loud. Then, close your eyes and say the sentence without looking at it.
  4. Repeat the step above, this time with the first 2 sentences.
  5. Next, try it with 3 sentences. Then 4. Repeat until you have memorized every sentence in your notes.
Kannski maður bara prufi þetta næst þegar maður á próf fyrir höndum! Hlæjandi

Brynja
18. júní 2007 klukkan 18:00
Ágústa og Brynja
4 athugasemdir
14júní

blogg

Ég sit í vinnunni og læt mér leiðast eins og venjulega, skoðandi föt og skart á netinu og langar að eyða mörg þúsundum í það allt saman. Fallegar hettupeysur með regnboganslitum eða marglita eyrnalokkar og armbönd! Greinilegt að litagleðin verður virk í sumar.

En ég var að tala við Ágústu á msn í gær og þar sem hún er ekkert sérlega dugleg við að blogga sökum net-leysis í Grikklandi þá er hún að fara til Danmerku í næstu viku og ætlar svo á Hróaskeldu um mánaðarmótin! En þið vissuð það eflaust Glottandi Hún ætlar að vera full í Danmörku áður en hún kemur til leiðinlega Íslands, sem verður skv henni milli 12. og 15. júní! Hlakka til!

Svo er ég orðin svakalega fullorðin og flyt á nýtt heimili í enda júlí!!! Hlæjandi

Svona til gaman þá setti ágústa þetta komment á myspace-ið mitt í gær:

nokkrar stapreyndir um mig og líf mitt þessa stundina:

*ég sit með hægu tölvuna mína í glugganum mínum og er að stela nettengingu

*ég er með 20 moskítóbit

*ég er ekki búin að kaupa mér nein föt síðan á seinasta ári!!(fyrir utan Converse skó sem kostuðu 1500 kr. í Tyrklandi)

*ég er núna að hlusta á maximo park, það er stuð!;)

*í dag var 33 stiga hiti, ég virðist samt ekki ætla að verða brún, er smá rauð!!

*í dag voru litlir kolkrabbar með augu aftur í matinn í vinnunni minni!(ég borðaði salat!)

*fjöldi frappé í dag=2

*fjöldi apóteka innan 10 mínútna frá húsinu mínu= um 15

*verð á 1,5 lítra af grísku víni=120 krónur

*ég veit ekki hvað ég ætla að gera í haust, hugmyndir?

* elín kemur í heimsókn til mín í lok júlí

*ég sakna þín!!

*viltu skrifa nokkar staðreyndir um líf þitt á mína síðu? jii þetta er orðið allt of langt comment!...BrOs..;)

og svar mitt er:

Nokkrar staðreyndir um mig og mitt líf þessa stundina:

- ég er með gulan marblett á kjálkanum á mér vinstra megin

- ég fékk sólarexem og brann á nebbanum í gær í sólinni

- ég var að eignast íbúð

- ég er að hlusta á rifrildi í vinnunni

- ég var að prufa IM á myspace, en enginn vill tala við mig

- ég fékk mér súpu í fjórða skiptið á 3 dögum áðan í matinn

- vinnan er leiðinleg

- verð á 750ml af léttvíni kosta um 900kr ;)

- það kostar 40.000kr að losna við endajaxla í neðri góm!

- Fólk er meira og minna fífl

- Mig langar í 33 stiga hita ;)

- Sakna þín líka og held að þú eigir að reyna fá undantekningu hjá nemendaskráningu til að komast í skólann í haust og jafnvel byrja að sækja um vinnur á netinu líka!

Þetta eru staðreyndir dagsins í dag, ekki neitt svaðalega skemmtilegar enda ekkert svaðalega skemmtilegur dagur ;)

Hafið það í huga að þetta er síðan í gær og dagurinn í dag gæti hljóðað allt öðruvísi!

En endilega kommentið þið eitthvað á færslurnar hérna...s.s mínar Glottandi þetta er svo tómlegt án ykkar álits!!

Brynja!

14. júní 2007 klukkan 19:44
Ágústa og Brynja
1 athugasemd
31maí

Nú er skólinn liðinn þessa önnina og sumarið er tekið við. Þvílíkt dásemdarlíf að hanga hérna inni fyrir framan tölvuna og láta sig dreyma um það sem er að gerast fyrir utan. Bara ef leikskólar myndu borga hærri laun, þá myndi ég vera úti með litlu börnunum að moka í sandkassanum og una mér vel Ullandi

Ég, Sara og Heiðdís hittumst á laugardaginn og sulluðum saman nokkrum kokteilum sem runnu vel niður í magann og komu illa upp daginn eftir...

en þessi drykkur er voðalega góður: Kokteillinn firefly

Firefly

60ml

Vodka

120ml

Greipsafi

30ml

Grenadine

A Hellið vodka og greipsafa í hristara með klaka, hrærið vel. Hellið í hátt glas og bæti við grenadine, hrærið aftur vel.


Ef þið hafið áhuga Glottandi








Mig hlakkar mjög mikið til að fá hana Ágústu heim til okkar og fara með henni á reyklaust kaffihús í Reykjavík! Svo er ég líka að fara til útlanda í sumar í sólina, vera á ströndinni með kokteil í annarri og kokteil í hinni Hlæjandi

Þið getið skoðað þessar fáu myndir síðan á laugardaginn hér ef einhver áhugi er til staðar en annars er þetta einnig blogg sem ég stofnaði vegna mynda og ákvað að setja inn nokkrar línur við og við á, mjög spennandi!

Orsök og afleiðing....
  • Ef maður notar ekki húfu þá fær maður kvef
  • Ef maður fær kvef þá eru líkur á að maður verði hás
  • Ef maður er hás þá þarf maður að hvísla
  • Þeir sem hvísla eru að ljúga
  • Þeir sem ljúga fara í fangelsi
  • Ef maður fer í fangelsi þá kynnist maður dópi
  • Ef maður dópar deyr maður!
Gleymdu því ekki helvítis húfunni!!!

Smá djókur:

Chinese walks into a bar in America late one night and he saw Steven Spielberg.

As he was a great fan of his movies, he rushes over to him, and asks for his autograph.

Instead, Spielberg gives him a slap and says, "You Chinese people bombed our Pearl Harbor, get outta here."

The astonished Chinese man replied, "It was not the Chinese who bombed your Pearl Harbor, it was the Japanese".

"Chinese, Japanese, Taiwanese, you're all the same,"replied Spielberg.

In return, the Chinese gives Spielberg a slap and says,"You sank the Titanic, my forefathers were on that ship."

Shocked, Spielberg replies, "It was the iceberg that sank the ship, not me."

The Chinese replies, "Iceberg, Spielberg, Carlsberg, you're all the same."



Sjáumst, Brynja



31. maí 2007 klukkan 19:15
Ágústa og Brynja
Engin athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ágústa og Brynja
  • Staður: Reykjavík og Thessaloniki
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Ágústa er sjálfboðaliði í Grikklandi og Brynja vinnur hjá símanum og er í HÍ.
  • Annað: Við erum frábærlega frábærar! ;)

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...