28ágúst

Fer á Fimmtudaginn!!!

Það er að koma að þessu börnin góð, ég flý landið góða á fimmtudag og fer til Barcelona í hitann ;) En á laugardaginn fórum við, Ágústa, Sara, Elsa, Kristín og Anna Lilja á red chili til að fagna því að ég er að fara út! Það var barasta fínasti matur þar..! Svo fórum við til Söru til að hella aðeins í okkur til að fagna meira för minni út...það var líka mjög fínt, nema ég fékk hausverk og magaverk og hafði enga lyst á víni svo ég fór ekki í bæinn ;( en alveg sátt við það að losna við þynnkuna daginn eftir ;) 

 elsa, anna og krístin

fröken sigursteinn

heiðdís, sara og anna

birna módel



Maður er nú ekkert voðalega mikið búnað gera. Ég fór á tónleika með Söru á fimmtudaginn síðasta, þar sáum við Vafurloga eða Vavurloga, veit ekki hvort það er f eða v, jæja, þeir voru nú barasta fínir líka!
 vafurlogi

Svo á föstudag var ég í mat hjá tengdó og fékk svo aldeilis góðan mat og fór síðan til söru þar sem við drukkum mojito og spjölluðum um lífið og tilveruna (mjög nákvæmar lýsingar á því sem ég er búnað vera gera ;) og fórum í bæinn, var nú ekki lengi þar...! (eins og vanalega) er bara búnað fá pínu leið á bænum og öllu því veseni, mjög fínt að vera bara í heimahúsi og hafa það kósi með vinum og sollis ;) sérstaklega þegar mojito er við hönd! Í bænum hittum við Mumma og mjög svo fullan vin hans Hjalta, furðuðum okkur á því að hann stæði enn í lappirnar! Það var líka mjög fínt..!
 En í dag sit ég við tölvuskjáinn að skrifa diska fyrir systur mína meðan ég bíð eftir að þvottavélin klári....ekkert sérstaklega fínt..!  Sí jú sún!  Brynja...!!
28. ágúst 2006 klukkan 21:56
Ágústa og Brynja
1 athugasemd
23ágúst

Brynja bloggar!

Hæ hæ! Núna er 1 vika og 2 dagar þangað til við förum til Barcelona og mér er ekki farið að hlakka til né kvíða fyrir...! En margt að gera þar til! Á laugardaginn fór ég í bæinn um daginn með Ágústu og við röltum eitthvað um, vorum voðalega ó-menningarlegar því við skoðuðum eiginlega ekkert, sáum Jeff Who? á tónleikum og aðeins af Reykjavík á undan þeim en Jeff who? eru mjög svo skemmtilegir á tónleikum. Svo um kveldið var partý hjá Ágústu sem var svaka stuð í og gaman! Fór aðeins í bæinn en ekkert inn, þurfti að fara með Sigþór heim sökum ölvunar ;)  Gay pride var nú fyrir 1 ½ viku síðan og það var mjög skemmtilegt, tók milljón myndir af þessu öllu saman! Fór með Ágústu í bæinn og hittum þar Önnu Lilju og hennar fjölskyldu. Ég fékk svona gay pride peluhálsfesti í göngunni, þau voru að kasta sollis í hópinn af einum flekanum. Mjög skemmtilegt ;)

Tribal dans
 Tribal dans!

Fjaðragaur!
Glæsilegur fjaðragaur ;)

Dragdrottning íslands 2006
Dagdrottning Íslands 2006

Næsta helgi verður svo sú síðasta hjá mér á Íslandi næstu þrjá mánuðina og langar mig að skemmta mér ýkt vel þá helgi! ;)


sí jú! b.
23. ágúst 2006 klukkan 01:17
Ágústa og Brynja
3 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ágústa og Brynja
  • Staður: Reykjavík og Thessaloniki
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Ágústa er sjálfboðaliði í Grikklandi og Brynja vinnur hjá símanum og er í HÍ.
  • Annað: Við erum frábærlega frábærar! ;)

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...